ChitoCare Beauty Serum Mask + Face Cream gjafaaskja

ChitoCare Beauty Serum Mask + Face Cream gjafaaskja

Venjulegt verð
6.990 kr
Söluverð
6.990 kr
Venjulegt verð
0 kr
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Einstök meðferð sem gefur húðinni fyllingu, raka og aukinn ljóma.  Kassinn inniheldur ChitoCare Beauty Serum maska og ChitoCare Face cream.


CHITOCARE BEAUTY FACE CREAM

Dag- og næturkremið er einstök samsetning náttúrulegra afurða úr Norður-Atlantshafi. Kremið ver húðina, er öflugur rakagjafi, eykur teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar. 

Kremið inniheldur SPF 15 sólarvörn og mikilvæg andoxunarefni sem vernda húðina gegn skaðlegum umhverfisþáttum, m.a. útfjólubláum geislum sólar og bláu ljósi frá tölvu- og snjalltækjaskjám. Þessi vörn varðveitir æskuljóma húðarinnar og ver hana fyrir ertingu og ótímabærum skaða.

Frábærir eiginleikar:

  • SPF 15 sólarvörn
  • Verndar húðina
  • Stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar

Hentar vel á allar húðgerðir sem og exemkennda og viðkvæma húð.

 

CHITOCARE BEAUTY SERUM MASK 

Einstök meðferð sem gefur húðinni fyllingu, raka og aukinn ljóma.

ChitoCare Beauty Serum maskinn er þróaður með lífvirka efninu kítósani sem er framleitt á Siglufirði og inniheldur byltingarkennda formúlu sem stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Serum maskinn inniheldur einnig hyaluronic sýrur sem binda raka í húðinni, ýta undir upptöku kollagens og hægja  á öldrun.

ChitoCare Beauty Serum maskinn inniheldur mikið magn af serum sem nýtist bæði á andlit og líkama.

Klínisk rannsókn sýnir fram á verulega aukinn raka í  húðinni*, auk þess sem fínar línur verða minna áberandi og yfirborð húðarinnar sléttara og jafnara.

* (raki jókst um 57% eftir 30 mín og 44% eftir 8 klst)  

ChitoCare Beauty Serum maskinn inniheldur mikið magn af serum sem nýtist bæði á andlit og líkama.

Gott ráð:  Upplagt er að setja á sig Serum maskann í baði og láta hann síðan leysast upp í baðvatninu eftir notkun til að ekkert fari til spillis.  Þannig myndar serumið fullkomna rakafilmu fyrir líkamann og hjúpar hann mýkt.

Frábærir eiginleikar:

  • Rakagefandi og mýkjandi
  • Verndar húðina
  • Dregur úr fínum línum

Hentar vel á allar húðgerðir sem og exemkennda og viðkvæma húð.