Vichy Normaderm Intensive Purifying hreinsigelið er djúphreinsandi andlitshreinsir fyrir blandaða, olíumikla og óhreina húð. Formúlan inniheldur zinc mineral, kopar og probiotics. Saman mynda þessi innihladsefni góða vörn gegn myndun óhreininda í húðinni. Hreinsigelið er með þægilegri áferð og hreinsar húðina og mattar áferð hennar um leið og húðin verður frísklegri.
Notkun:
Notið til að hreinsa andlitið kvölds og morgna, forðist snertingu við augnsvæðið. Gott er að bleyta andlitið fyrir notkun. Hreinsið gelið sérstaklega vel af húðinni eftir notkun. Dragið úr notkun ef þið finnið fyrir óþægindum eftir notkun.