ChitoCare Gjafasett - Shower Gel 150ml & Body Lotion 50ml

ChitoCare Gjafasett - Shower Gel 150ml & Body Lotion 50ml

Venjulegt verð
3.890 kr
Söluverð
3.890 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Þessi glæsilega jólaaskja inniheldur ChitoCare beauty Shower Gel og ChitoCare beauty Body Lotion. Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína og myndar filmu. Það dregur úr roða og pirringi, viðheldur raka og gefur húðinni silkimjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif og öflug vernd, það stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar auk þess að vera bakteríudrepandi.

ChitoCare beauty Shower Gel 150ml

Lífvirk sturtusápa hlaðin náttúrulegum innihaldsefnum sem hreinsa, fríska og endurnæra húðina. Hún inniheldur andoxunarefni og samsetningu virkra innihaldsefna úr hafinu og íslensku jarðhitavatni, sem vernda húðina. Sturtusápan gefur húðinni næringu og hreinsar hana á áhrifaríkan hátt án þess að fjarlægja náttúrulegar rakavarnir hennar.

ChitoCare beauty Body Lotion 50ml 

Hágæða líkamskrem hlaðið náttúrulegum og virkum innihaldsefnum sem gefa húðinni aukinn raka, mýkt og ljóma. Kremið gefur húðinni næringu og það inniheldur lífvirkt kítósan með vísindalega sannaða græðandi eiginleika. Það afhjúpar náttúrulega fegurð húðarinnar.