ChitoCare gjafasett - Anti-Aging Repair Serum 30ml, Face Cream 50ml, Body Lotion 50ml & Hand Cream 50ml

ChitoCare gjafasett - Anti-Aging Repair Serum 30ml, Face Cream 50ml, Body Lotion 50ml & Hand Cream 50ml

Venjulegt verð
15.192 kr
Söluverð
15.192 kr
Venjulegt verð
18.990 kr
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Þessi glæsilega jólaaskja inniheldur ChitoCare beauty Anti-Aging Repair Serum, Face Cream, Body Lotion og Hand Cream. Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína og myndar filmu. Það dregur úr roða og pirringi, viðheldur raka og gefur húðinni silkimjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif og öflug vernd, það stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar auk þess að vera bakteríudrepandi.

ChitoCare beauty Anti-Aging Repair Serum 30ml

Þessi einstaka samsetning náttúrulegra afurða ver húðina og er öflugur rakagjafi sem stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Klínískar prófanir sýna að það dregur úr fínum línum og djúpum hrukkum. Anti-Aging Repair Serum inniheldur lífvirka efnið kítósan og hýalúronsýru sem dregur úr fínum línum og öldrunarmerkjum af völdum áhrifa eins og mengunar og streitu.Serumið endurnærir húðina svo hún öðlast ljóma og unglegri áferð.

ChitoCare beauty Face Cream 50ml

Dag- og næturkremið er einstök samsetning náttúrulegra afurða úr Norður-Atlantshafi. Kremið ver húðina, er öflugur rakagjafi, eykur teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar.

Kremið inniheldur SPF 15 sólarvörn og mikilvæg andoxunarefni sem vernda húðina gegn skaðlegum umhverfisþáttum, m.a. útfjólubláum geislum sólar og bláu ljósi frá tölvu- og snjalltækjaskjám. Þessi vörn varðveitir æskuljóma húðarinnar og ver hana fyrir ertingu og ótímabærum skaða.

Frábærir eiginleikar:
• SPF 15 sólarvörn
• Verndar húðina
• Stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar

ChitoCare beauty Hand Cream 50ml

Enduruppgötvaðu fegurð handanna með náttúrulegum og virkum innihaldsefnum úr hafinu. Handáburðurinn inniheldur lífvirkt kítósan með vísindalega sannaða græðandi eiginleika sem myndar filmu, dregur úr roða og pirringi, og verndar hendurnar.

ChitoCare beauty Body Lotion 50ml

Hágæða líkamskrem hlaðið náttúrulegum og virkum innihaldsefnum sem gefa húðinni aukinn raka, mýkt og ljóma. Kremið gefur húðinni næringu og það inniheldur lífvirkt kítósan með vísindalega sannaða græðandi eiginleika. Það afhjúpar náttúrulega fegurð húðarinnar.