Femmenessence MacaHarmony 120 hylki

Femmenessence MacaHarmony 120 hylki

Venjulegt verð
4.490 kr
Söluverð
4.490 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Femmenessence MacaHarmony er fyrir konur á barneignar- og frjósemisaldri sem kannast við og eru með eftirfarandi einkenni; fyrirtíðaspennu, sársaukafullar blæðingar, óreglulegar blæðingar, húðvandamál, skapsveiflur, pirring og frjósemisvandamál.

Femmenessence er náttúruleg og lífræn macarót og inniheldur ekki hormóna en styður við framleiðslu líkamans á hormónum gegnum HPA axis eða undirstúku-heiladinguls-nýrnahettu öxulinn og kemur þannig jafnvægi á hormónabúskapinn og hormónajafnvægið.

Femmenessence inniheldur eingöngu afurð macarótarinnar og búið er að einangra virku efnin úr macarótinni sem hjálpa til við hormónatengd vandamál kvenna á mismunandi aldri.

Skammtar: Eitt hylki að morgni með mat í nokkra daga og bæta svo við öðru á nokkurra daga fresti þar til fullum skammti er náð en Femmenessence er mjög virkt.

Ráðlagður dagsskammtur er 1-4 hylki á dag – fer eftir einkennum.

Femmenessence er með lífræna vottun í USA, Evrópu og Japan, er ekki erfðabreytt (non GMO) er með Fair Trade vottun eða sanngirnisvottun, er glúteinfrítt og hentugt fyrir grænmetisætur. Femmenessence pakkinn inniheldur 120 þynnupökkuð grænmetishylki en macarótin er viðkvæm fyrir súrefni og sólarljósi og því er þynnupökkun nauðsynleg til að viðhalda virkni og gæðum macarótarinnar.

Virkni Femmenessence hefur verið staðfest í rannsóknum og birt í virtum lækna- og vísindatímaritum

Ábyrgðaraðili: Artasan