Hafkalk hylki

Hafkalk hylki

Venjulegt verð
2.290 kr
Söluverð
2.290 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Kalkþörungar úr Arnarfirði innihalda u.þ.b. 30% Kalsíum, 2% Magnesíum og fjölmörg stein- og snefilefni, m.a. járn, sink, selen, kalíum, mangan, joð og kóbalt. Samtals 74 stein- og snefilefni úr hafinu í náttúrulegu jafnvægi. Kalkþörungar hafa mikið yfirborð vegna einstakrar uppbyggingar og brotna auðveldlega niður í meltingaveginum. Þetta, ásamt samlegðaráhrifum hinna fjölmörgu snefilefna, tryggir góða upptöku og virkni.

Sérstaklega eru það konur sem komnar eru á miðjan aldur sem þurfa á þessum efnum að halda til að fyrirbyggja beinþynningu en einnig konur á meðgöngu eða með barn á brjósti og allir sem ekki fá nægilegt kalk og steinefni úr fæðunni.

Komið hefur í ljós og staðfest af fjölda fólks að HAFKALK dragi úr verkjum vegna slitgigtar.  Einnig eru vísbendingar um að það geti komið í veg fyrir fótaóeirð (Restless legs syndrome). HAFKALK á því fullt erindi á íslenskan markað og hefur veitt innfluttum fæðubótarefnum, sem eiga að hafa svipaða virkni, verðuga samkeppni.

Hafkalk  er vottuð náttúruvara sem sér þér fyrir hreinu náttúrulegu kalki og fjölmörgum lífsnauðsynlegum steinefnum.

HAFKALK  – Ekki bara kalk!

Ábyrgðaraðili: Hafkalk ehf.