Júgursmyrsl er feitt smyrsli sem hefur margþætt notagildi. Júgursmyrsl er meðal annars notað sem hreinsikrem, sem rakakrem á mjög þurra húð, á þurrkubletti, sem renniefni á endaþarmsstíla og til að auðvelda mjólkun.
Júgursmyrsl ber nafn sitt af því að vera mikið notað til að bera á spena á kúm. Í dag er júgursmyrsl víða notað til að auðvelda mjólkun úr ám og kúm.
Geymsla: Geymist við stofuhita.
Innihald: Vaselín, paraffínolía og paraffínvax