Better You D-Lux munnúði 3000 iu 15 ml

Better You D-Lux munnúði 3000 iu 15 ml

Venjulegt verð
1.880 kr
Söluverð
1.880 kr
Venjulegt verð
0 kr
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

D vítamínskortur er afar algengur í vestrænum löndum en hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma og skiptir þetta vítamín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi og sterkar tennur og bein. Rannsóknir gefa þó til kynna að það gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja sjúkdóma. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D vítamínskorti.

Í gegnum þróunarsöguna hefur sólin verið meginuppspretta D vítamíns en í dag þegar fólk notar meiri sólarvörn, forðast sólina eða býr þar sem ekki er næg sól er skortur á D vítamíni mjög algengur. Íslendingar fara ekki varhluta af sólarleysinu og því er það sérlega mikilvægt að við pössum uppá að taka inn D vítamín.

D 3000 er afar handhægt og bragðgott;

  • Vítamínið fer beint út í blóðrás í stað þess að fara í gegnum meltingarveginn.
  • Skammtakerfi sem skammtar 3000IU í hverjum úða.
  • Fyrir alla sem vilja meira magn í einum úða.
  • Í hverju glasi eru 100 úðar eða um 3ja mánaða skammtur.
  • Gott, náttúrulegt piparmyntubragð.
  • Hentar grænmetisætum.
  • Fyrir alla sem hafa áhyggjur af skorti á sólarljósi.
  • Hentar öllum aldri.