Better You D-Lux munnúði undir 3 ára 15ml

Better You D-Lux munnúði undir 3 ára 15ml

Venjulegt verð
2.060 kr
Söluverð
2.060 kr
Venjulegt verð
0 kr
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Hver einasta fruma líkamans þarf D-vítamín og það er jafnframt eina vítamínið sem  við þurfum að fá á bætiefnaformi alla ævi.  Fljótlega eftir fæðingu þarf að huga að D-vítamíngjöf fyrir ungabarnið því að móðurmjólkin sem er svo næringarrík inniheldur ekki nægilegt magn af þessu vítamíni.

Skortur á D-vítamíni tengist yfir 100 sjúkdómseinkennum og getur það m.a. komið fram í lélegri beinheilsu og skemmdum tönnum því það sér um að  frásoga kalkið úr blóðinu til að að nýtist sem best en 99% af kalki er að finna einmitt í beinum og tönnum.

D Lúx frá Better you er til fyrir alla aldurshópa og er D Lúx – infant hugsað fyrir börn yngri en þriggja ára. Hver úði inniheldur ráðlagðan dagsskammt fyrir ungabörn, 400 a.e. og það eru 100 skammtar í glasinu.

Upptaka gegnum slímhúð (undir tungu og/eða út í kinn) tryggir hámarksupptöku. 

 

Landlæknisembættið ráðleggur 400 a.e. daglega fyrir ungabörn

 

Ráðlagðir dagsskammtar skv. Landlæknisembættinu:

Skv. Landlæknisembættinu eru efri mörk ráðlagðrar neyslu 100 μg á dag (4000 AE) fyrir fullorðna, 50 μg (2000 AE) fyrir börn eldri en eins árs að tíu ára aldri og 25 μg (1000 AE) fyrir ungbörn að eins árs aldri. 

Munnspreyin er sérstaklega hönnuð þannig að þau frásogist beint inn í blóðrásina og fari framhjá meltignarveginum og tryggja þannig hámarks upptöku. Litlir dropar frásogast fljótt í munninum, en þetta er einföld og vísindalega sönnuð aðferð.