CeraVe – Hydrating Cleanser 237 ml

CeraVe – Hydrating Cleanser 237 ml

Venjulegt verð
2.890 kr
Söluverð
2.890 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Rakagefandi andlitshreinsir sem hreinsar burtu öll óhreinindi eins og förðunarvörur, yfirborðsóhreinindi, mengun og sót af yfirborði húðarinnar. Það er mikilvægt að velja formúlu sem ögrar ekki náttúrulegu vörnum húðarinnar eða tekur raka frá yfirborði húðarinnar. CeraVe Hydrating Facial Cleanser er mildur hreinsir með innihaldsefni eins og seramíð sem styrkja ysta lag húðarinnar og hjálpa húðinni að læsa raka inni, ásamt hýalúrónsýru sem viðheldur raka á yfirborði húðarinnar.

CeraVe Hydrating Cleanser var þróaður með húðsjúkdómalæknum til að hreinsa og endurnæra húðina án þess að láta húðinni líða eins og hún sé stíf og þurr. Hreinsirinn inniheldur þrjú ólík seramíð sem styrkja ysta lag húðarinnar og rakagefandi hýalúrónsýru, hann er non-comedogenic og er því frábær sem fyrsta skref í húðhreinsun fyrir venjulega/þurra húð. Hreinsirinn er byggður á MVE tækni sem stuðlar að því að húðin fær jafna næringu allan daginn og alla nóttina.
• Hentar venjulegri/þurri húð
• MVE tækni: tæknileg aðferð sem stuðlar að því að húðin fær jafnt magn af næringarefnum í 24 tíma frá því varan er borin á húðina fyrst.
• Seramíð: Nauðsynleg til að viðhalda heilbrigðri húð. Seramíð hjálpa til við að endurnæra og viðhalda styrk og heilbrigði ysta lags húðarinnar.
• Hýalúronsýru: Innihaldsefni sem dregur til sín raka og viðheldur honum á yfirborði húðarinnar.
• Non-comedogenic, án ertandi innihaldsefna og ilmefnalaus
• Þróað af húðlæknum.

Notkunarleiðbeiningar

Berið hreinsi á raka húðina, nuddið hreinsinum saman við yfirborð húðarinnar með hringlaga hreyfingum. Skolið hreinsinn af með vatni. Hreinsinn má nota á andlit og líkama.