
Þessi glæsilega jólaaskja inniheldur ChitoCare beauty Body Lotion ChitoCare beauty Body Scrub ásamt ChitoCare beauty Hand Cream. Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína og myndar filmu. Það dregur úr roða og pirringi, viðheldur raka og gefur húðinni silkimjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif og öflug vernd, það stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar auk þess að vera bakteríudrepandi.
ChitoCare beauty Body Lotion
Hágæða líkamskrem hlaðið náttúrulegum og virkum innihaldsefnum sem gefa húðinni aukinn raka, mýkt og ljóma. Kremið gefur húðinni næringu og það inniheldur lífvirkt kítósan með vísindalega sannaða græðandi eiginleika. Það afhjúpar náttúrulega fegurð húðarinnar.
ChitoCare beauty Body Scrub
Hágæða líkamsskrúbbur sem stinnir og mótar húðina, hann fjarlægir dauðar húðfrumur á áhrifaríkan hátt og vinnur gegn appelsínuhúð. Skrúbburinn er hlaðinn náttúrulegum innihaldsefnum eins og kítósan úr hafinu og koffíni svo húðin verður silkimjúk og endurnærð.
ChitoCare beauty Hand Cream
Enduruppgötvaðu fegurð handanna með náttúrulegum og virkum innihaldsefnum úr hafinu. Handáburðurinn inniheldur lífvirkt kítósan með vísindalega sannaða græðandi eiginleika sem myndar filmu, dregur úr roða og pirringi, og verndar hendurnar.