Dekraðu við líkamann með Ocean Ritual gjafasettinu. Settið inniheldur allt sem til þarf til að veita húðinni næringu og mýkt: frískandi sturtusápa, endurnærandi líkamskrem og þurrbursti sem örvar blóðflæði og hreinsar burt dauðar húðfrumur.
INNSÆI Renew Body Wash 400ml
Mild og rakagefandi sturtusápa sem hreinsar húðina án þess að þurrka hana. Formúlan inniheldur náttúruleg hráefni úr hafinu sem næra húðina, viðhalda raka og hreinsa á áhrifaríkan hátt án þess að fjarlægja náttúrulegar rakavarnir hennar. Húðin verður hrein, mjúk og öðlast ferska og endurnærða tilfinningu eftir hverja notkun.
INNSÆI Renew Body Lotion 400ml
Rakagefandi líkamskrem sem nærir og róar húðina. Formúlan inniheldur náttúruleg hráefni úr hafinu sem styrkja húðina, viðhalda raka og stuðla að heilbrigðum ljóma. Kremið styður við náttúrulegt viðgerðarferli húðarinnar svo hún fær aukinn styrk, mýkt og vellíðan eftir hverja notkun.
Body Brush
Þurrbursti fyrir líkamann sem hentar vel sem hluti af daglegri líkamsumhirðu. Burstinn hjálpar til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og örva blóðflæði og stuðlar að mýkri og jafnari áferð húðarinnar. Hann er einföld viðbót við líkamsrútínuna sem gefur húðinni ferskara yfirbragð.