Bæta vöru í körfu
Byltingarkenndur ensímhreinsir sem veitir milda djúphreinsun og örvar endurnýjun húðar. Púðrið umbreytist í silkimjúka lausn við snertingu við vatn og fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðar á mildan en áhrifaríkan hátt. Húðin verður hrein, mjúk og endurnærð, með jafnara yfirbragð.
Helstu eiginleikar og ávinningur
Niðurstöður klínískrar prófunar og neytendakönnunar eftir eina notkun:
93% finnst húðin djúphreinsuð
90% finnst húðin frísklegri
87% finnst áferð húðar jafnari
83% finnst húðin meira ljómandi
98% hreinni húð
49% aukning ljóma strax eftir notkun
30% sléttari húð strax eftir notkun
*Byggt á klínískri prófun og neytendakönnun með 30 þáttakendum, 24 konum og 6 karlmönnum, 40-70 ára (allar húðgerðir). Niðurstöður sjálfsmats skráðar eftir eina notkun.
✔ Hreinsar húðina á mildan en áhrifaríkan hátt
✔ Fjarlægir dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi
✔ Djúphreinsar líflausa húð og örvar endurnýjun
✔ Gefur húðinni mýkt, sléttari áferð og jafnara yfirbragð
✔ Hjálpar til við að viðhalda raka
✔ Verndar húðina með andoxunarvirkni
Notkun
Notið eftir þörfum til að djúphreinsa andlit og háls. Hellið litlu magni af púðri í lófann og bætið við nokkrum dropum af volgu vatni. Nuddið síðan höndunum saman til að virkja hreinsinn. Púðrið umbreytist í létta, silkimjúka lausn þegar það kemst í snertingu við vatn. Nuddið á rakt andlit og háls með hringlaga hreyfingum og skolið vel af með vatni. Forðist augnsvæðið.
Use left/right arrows to navigate the slideshow or swipe left/right if using a mobile device