
Déflamol bossakrem er notað m.a. á bleiuútbrot. Það hefur tvennskonar virkni, bæði sótthreinsandi og græðandi. (Zinc oxide og Titanium oxide = tvö virk efni í einum og sama áburðinum.) Sinkoxíð tekur þátt í örvefsmyndun og er einnig sótthreinsandi. Það er oft haft með í áburðum sem nota á við kláða, hrúðurmyndun og gegn psoriasis
Títaníumoxíð vinnur gegn kláða. Það er haft með í mörgum gerðum áburðar sem notaðir eru gegn psoriasis. Tvíþætt verkun sinkoxíð og títaníumoxíð gefa til samans góða verkun.Í samanburði við samkeppnisvörur er græðingarmáttur Déflamol mjög góður.
- Déflamol er ekki feitt og lyktar þar að auki vel.
- Déflamol er mjúkur áburður í túpu sem auðveldlega má bera á húðina í þunnu lagi án þess að særa barnið.