Femmenessence MacaPause 120 hylki

Femmenessence MacaPause 120 hylki

Venjulegt verð
4.490 kr
Söluverð
4.490 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Femmenessence MacaPause er fyrir konur eftir fimmtugt eða þær sem hafa ekki haft blæðingar síðustu 12 mánuði og fyrir konur sem hafa, vegna aðgerða eins og brottnáms á eggjastokkum, farið á breytingarskeiðið. Einkennin geta verið þau sömu og hjá konum sem eru að byrja á breytingarskeiðinu (hitakóf, nætursviti, svefntruflanir, geðsveiflur, þunglyndi, beinþynning, heilaþoka, minnkuð kynhvöt og leggangaþurrkur )en styrkur MacaPause er helmingi meiri en í MacaLife

Macarótin er þekkt fyrir að hafa sérlega góð áhrif á hormónatengd óþægindi kvenna auk þess sem hún er talin auka kynhvöt og löngun. Klínískar rannsóknir sýna að konur léttast að meðaltali um 6 % eftir fjögurra mánaða notkun. Örugg og náttúruleg leið til að draga úr breytingarskeiðsóþægindum, auka orku og úthald, draga úr steitu og styrkja grunnheilsu.

Femmenessence inniheldur eingöngu afurð macarótarinnar og búið er að einangra virku efnin úr macarótinni sem hjálpa til við hormónatengd vandamál kvenna á mismunandi aldri.

Skammtar: Eitt hylki að morgni með mat í nokkra daga og bæta svo við öðru á nokkurra daga fresti þar til fullum skammti er náð en Femmenessence er mjög virkt.

Ráðlagður dagsskammtur er 1-4 hylki á dag – fer eftir einkennum.

Femmenessence er með lífræna vottun í USA, Evrópu og Japan, er ekki erfðabreytt (non GMO) er með Fair Trade vottun eða sanngirnisvottun, er glúteinfrítt og hentugt fyrir grænmetisætur. Virkni Femmenessence hefur verið staðfest í rannsóknum og birt í virtum lækna- og vísindatímaritum.

Ábyrgðaraðili: Astasan