Florealis Glitinum fyrirbyggjandi gegn mígreni 100 mg, 30 stk.

Florealis Glitinum fyrirbyggjandi gegn mígreni 100 mg, 30 stk.

Venjulegt verð
3.970 kr
Söluverð
3.970 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Glitinum er jurtalyf sem notað er fyrirbyggjandi við mígreni. Lyfið er tekið að staðaldri til að draga úr tíðni mígrenikasta og lengja tímann á milli kasta. Mígreni er ástand sem einkennist af slæmum höfuðverkjaköstum og er ein af algengustu ástæðunum fyrir örorku og vinnutapi. Það er því mikil þörf á nýjum meðferðarúrræðum til að draga úr mígreni.

Glitinum er eina lyfið til að fyrirbyggja mígreni sem fæst án lyfseðils og er skráð í sérlyfjaskrá. Jurtalyfið þolist almennt vel og hefur einungis fáar, vægar aukaverkanir.

Glitinum inniheldur þurrkaða glitbrá (e. feverfew) sem hefur skráða örugga notkun við mígreni í yfir 40 ár. Glitbrá inniheldur virk efnasambönd og er Glitinum staðlað með tilliti til þessara virku efna, sem tryggir bæði rétta verkun og öryggi jurtalyfsins.

Notkun: 1 hylki daglega.

Glitinum er Jurtalyf sem hefð er fyrir til að fyrirbyggja mígreni eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni. Hvorki ætlað börnum yngri en 18 ára né þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Notið ekki lengur en 3 mánuði í einu án samráðs við lækni. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.

Hvert hylki inniheldur: 100 mg af þurrkaðri glitbrá (Tanacetum parthenium).    

Ábyrgðaraðili:  Florealis ehf.