Florealis Sefitude 60 töflur

Florealis Sefitude 60 töflur

Venjulegt verð
3.990 kr
Söluverð
3.990 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Sefitude hefur róandi og kvíðastillandi verkun. Lyfið er notað til að auðvelda svefn, bæta  svefngæði og til að draga úr taugaspennu og kvíða án þess að hafa áhrif á frammistöðu eða daglegar athafnir.  Hægt er að nota Sefitude meðfram öðrum svefnmeðferðum til að styðja við góðar svefnvenjur.

Sefitude er skráð jurtalyf á Norðurlöndunum og inniheldur staðlaðan útdrátt úr rót garðabrúðu. Garðabrúða er viðurkennd lækningajurt og hafa bæði klínískar og forklínískar rannsóknir sýnt fram á virkni hennar.

Sefitude nær hámarksvirkni við samfellda notkun í 2 – 4 vikur og vinnur því best á langvinnum vægum kvíða og svefntruflunum. Sökum þess að áhrifin byggjast upp yfir tíma er ekki ráðlagt að nota Sefitude sem bráðameðferð við kvíða. Lyfið þolist almennt vel og má nota frá 12 ára aldri.

Notkun:

Við vægum kvíða: fullorðnir 1 tafla allt að 3svar á dag, 12-18 ára 1 tafla allt að 2svar á dag
Við svefntruflunum: 1 tafla ½-1 klst fyrir svefn, 1 auka tafla að kvöldi ef þörf krefur.
Hámarksdagsskammtur: fyrir ungmenni 12-18 ára, 2 töflur og fyrir fullorðna, 4 töflur.

Hver tafla inniheldur 445 mg úr garðabrúðrót (Valeriana officinalis). Róandi áhrif hennar hafa verið staðfest í klínískum samanburðarrannsóknum.