Iceherbs hóstamixtúra íslenskir brjóstdropar 200 ml.

Iceherbs hóstamixtúra íslenskir brjóstdropar 200 ml.

Venjulegt verð
1.850 kr
Söluverð
1.850 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Fjallagrasa Íslenskir brjóstdropar vinna gegn særindum í hálsi.  Hálsmixtúran inniheldur fjölsykrur sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.

Fjallagrasa brjóstdropar innihalda mjög hátt hlutfall af fjallagrösum sem tryggir mikla virkni þeirra eins og í öðrum fjallagrasa hálsmixtúrunum. Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, lichenin, isolichenin og fléttusýrur sem mýkja slímhúð í hálsi.  Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran mentól og lakkrís sem eru þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.

Fjallagrasa íslenskir brjóstdropar innihalda alkóhól og henta því ekki börnum.

Fjallagrasamixtúrnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því mixtúrurnar innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi.

Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsumixtúrur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.

Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

Notkun: Hristist fyrir notkun.  Notist 2-3 sinnum á dag.  1 matskeið fyrir fullorðna.  Ekki ætlað börnum.  20-30 daga skammtur.

Innihald:Vatn, maltitólsýróp, fjallagrasaþykkni, etanól, salmíak, lakkrískjarni og mentól.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.