Hvannarrót, Angelica archangelica, er ein af þekktari nytja- og lækningajurta, sem notuð var á íslandi og víðar í norðurálfu til forna. Hún vex aðallega á norðlægum slóðum eða hátt til fjalla í Evrópu.
Allir hlutar plöntunnar hafa verið nýttir í gegnum tíðina en hvannrótin var einna mest notuð til lækninga.
Jurtin er þekkt fyrir áhrif sín á einkenni ofvirkrar þvagblöðru og getur viðhaldið heilbrigðri þvagblöðru og þvagrás. Notkun hvannar hefur sýnt fram á að salernisferðum geta fækkað og þar með haft áhrif á svefn og almennt heilbrigðan lífstíl.
Hvannarrót hefur lengi verið notuð til að örva meltingu og draga úr brjóstsviða og uppþembu. Í kínversum jurtalækningum hefur jurtin verið notuð bæði við tíðavandamálum hjá konum sem og tíðahvörfum.
Á seinni árum hafa miklar rannsóknir verið gerðar á virkni og efnainnihaldi ætihvannar. Margvísleg efni eru að finna í ætihvönn, sérstaklega er mikið af svokölluðum coumarin efnum, sem eru þekkt fyrir margvíslega lífvirkni.
Notkun:
- Takið 2 hylki á dag með vatni.
- Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
- Geymið þar sem börn ná ekki til.
Hvert hylki inniheldur:
- Hvannarót, 420 mg
- Engin aukaefni
- Hylkin eru úr jurtabeðmi (vegan)
Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.