Iceherbs Sofðu Rótt 60 hylki

Iceherbs Sofðu Rótt 60 hylki

Venjulegt verð
2.590 kr
Söluverð
2.590 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarkostnaður
hver 
Skattur innifalinn.

Magnolia officinalis vex í fjallendi í Kína og hefur verið notuð um aldir við þunglyndi, svefnvandamálum og kvíða. Virku efnin eru í berkinum og er því líka talað um Magnoliubörk en þau virðast örva boðefnið acetylcholine í heilanum og koma jafnvægi á hormónið cortison sem stýrir m.a. vöknun. Það leiðir síðan til að fólk slakar betur á, sem bætir svefn og vinnur einnig gegn kvíða og þunglyndi. Betri andleg líðan styrkir líka ónæmiskerfið og hjálpar því fólki að takast á við áskoranir hins daglega lífs eins og ofneyslu af ýmsu tagi.

Rannsóknir á Magnoliu hafa sýnt að hún inniheldur nokkur efni, .þ.á.m. honokiol og magnolol, sem vitað er að hafa áhrif á andlegt jafnvægi og virka almennt slakandi og róandi og bæta eðlilegan og samfelldan svefn. Magnolia vinnur einnig gegn kvíða og þunglyndi og dregur úr stressi. Hentar vel fyrir þá sem vilja aðstoð við að ná betur jafnari og samfelldum svefni og bæta andlega líðan.

Magnoliuhylkin frá Íslenskum fjallagrösum innihalda 85% mulinn magnoliubörk og 15% mulin fjallagrös, sem hjálpar til við meltingu og upptöku andoxunarefna úr meltingarveginum.

Notkun: Hæfilegur dagsskammtur af Magnoliu hylkjunum eru 1-2 hylki á dag, helst nokkru fyrir svefn, með glasi af vatni. Ekki er mælt með að ung börn og ófrískar konur  taki Magnoliu hylkin.

Innihaldslýsing:
Sofðu rótt inniheldur magnolíu og íslensk fjallagrös. Hylkin eru úr jurtabeðmi.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.