Bleach Blondes Ice White Toning Conditioner er djúpfjólublá tóner-næring með gráleitan undirtón sem birtir og frískar upp á ljóst hár með því að vinna gegn kopar- og gulum tónum. Ice White sjampóið og næringin gerir ljóst hár grátóna. Næringuna er hægt að nota með hvaða sjampói sem er til þess að viðhalda eða fríska upp á ljósa lokka á mildan hátt. Ef þú ert með mjög kopartóna og hlýjan tón sem þú vilt kæla niður eða vilt fá þetta ofur-kalda gráleita lúkk skaltu nota þessa næringu með Bleach Blondes Ice White sjampóinu okkar.
Notkun:
- Eftir hárþvott með sjampói skaltu bera næringuna jafnt í allt hárið. Fyrir bestan árangur skaltu greiða næringuna í gegnum hárið á meðan þú ert í sturtunni
- Láttu næringuna bíða í hárinu í eina mínútu, skolaðu hárið vandlega og skolaðu það síðan aftur
- Notaðu vikulega til þess að viðhalda köldum litatón
- Ef þér finnst hárið vera of-tónað er ágætt að þvo hárið með Everyday Blondes sjampóinu okkar einu sinni og þá ætti tónninn að mildast aðeins
Hentar:
- Náttúrulega ljósu og lituðu hári
- Þeim sem vilja losna við gula- og kopartóna úr ljósu hári og gefa því gráleitan tón
- Þeim sem vilja viðhalda litnum í ljósa hárinu sínu
Ávinningur:
- Fjarlægir kopar- og gula tóna úr ljósu hári