Revitalift Laser snyrtivörulínan gefur árangri lýtaaðgerða ekkert eftir – hentar 35-40 ára eftir ástandi húðar. Vörurnar innihalda Hyaluonic Acid sem er rakamikið efni sem fer hratt inní húðina og lagar hana að innan frá – efnið vinnur í því að draga úr fínum línum á meiri hraða en önnur efni. Einnig innihalda þær Pro-Xylane sem örva og styrkja frumur húðarinnar svo hún verður stinnari, mýkri og yfirborðsfallegri en áður.
Eftir stöðuga notkun á öllum vörunum er töluvert sjáanlegur munur. Fínar línur minnka, húðin verður stinnari og andlitsdrættir verða skýrari.
Eins og á við um flestar húðvörulínur þá fæst besti árangurinn með því að nota allar vörurnar:
Serumið fer lengra inní húðina en dagkremið og vinnur sig uppá yfirborð húðarinnar og kemur þannig á móti kreminu. Gefur ennþá meiri virkni. Notist á undan dag-/næturkremi.