PENZIM® er húðáburður og fæst sem hlaup eða húðmjólk. PENZIM® er fjölvirk heilsuvara sem örvar endurnýjun húðarinnar og hefur sefandi áhrif á ertingu vegna þurrks, útbrota, flugnabita og sólbruna.
PENZIM® hefur verið á markaði á Íslandi frá árinu 1999. Fjölmargir notendur vörunnar hafa lýst græðandi áhrifum hennar og hvernig hún vinnur gegn myndun öra eftir sár.
-
PENZIM® er rakagefandi og hentar á þurra húð.
-
PENZIM® hentar sérlega vel á viðkvæma húð, t.d. eftir rakstur og á bleyjubruna.
-
PENZIM® hentar á allar húðtegundir og er fyrir fólk á öllum aldri.
-
PENZIM® er einkaleyfisvarin íslensk uppfinning sem byggir á áratuga rannsóknarstarfi.
-
PENZIM® inniheldur náttúruleg sjávarensím og engin rotvarnar- eða ilmefni.
Inniheldur: Glýseról, vatn, sorbitól, trypsín (Penzyme®), alkóhól, carbomer, trómetamól, ediksýra og kalsíumklóríð.