Náttúruleg sápa með handtíndum jurtum úr íslenskri náttúru sem veita dásamlegan ilm og vernda hendurnar fyrir þurrki og kulda.
Lóuþræll handspritt er blanda græðandi íslenskra jurta og frískandi ilmkjarna. Í handsprittinu er áhrifarík blanda handtíndra lækningajurta, birki og vallhumall.
Lóuþræll hefur að geyma áhrifaríka blöndu íslenskra lækningajurta, birki og vallhumall. Birki inniheldur flavonióða sem er talið hafa bakteríu- og veirudrepandi áhrif. Vallhumall hefur í gegnum ættliði verið notuð til að mýkja og styrkja húðina. Blanda sem getur ekki klikkað!
Lóuþræll gjafasettið inniheldur 250ml af Lóuþræl handsápu og handspritti.